Í dag 17. maí var lokadagur þessa skólaárs í Finnbogastaðaskóla. Við skólaslitin voru nemendur ásamt foreldrum sínum og öðrum ættingjum og vinum. Gestir gerðu sér glaðan dag með því að fylgjast með nemendum taka við vitnisburði sínum og viðurkenningum ásamt því að skoða það sem nemendur hafa verið að vinna að í vetur. Góðar veitingar voru að venju í eldhúsinu enda dagur gleði og ánægju eftir vel unnin störf í vetur. Að skólaslitum loknum héldu nemendur svo glaðir og sælir út í sumarið en þó með nokkrum trega því þetta er síðasta skólaár Júlíönu Lindar og þökkum við henni innilega góða samveru og vonum að henni farnist vel í nýja skólanum sínum.
Með bestu sumarkveðjum
Bloggar | 18.5.2012 | 01:33 (breytt kl. 01:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við ákáðum að fara í alvöru náttúrufræði og skelltum okkur í það verkefni að setja kartöflur niður í garðinn. Við pöntuðum útsæði og áburð í kaupfélaginu og þegar það var komið til okkar byrjuðum við á því að stinga upp garðinn og hreinsa til. Svo gerðum við litlar holur og settum niður kartöflurnar ásamt svolitlum áburði. Við fengum líka rófufræ og settum þau niður í hluta af garðinum. Að lokum hreinsuðum við til í rabbabarabeðinu og svo er bara að bíða og sjá hvernig sumarið fer með garðinn okkar. Vonandi fáum við góða uppskeru!
Bloggar | 14.5.2012 | 11:30 (breytt kl. 11:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á mánudaginn var Unicefdagur. Þá gerum við þrautir, eins og hástökk, langstökk, standa á haus, rekja bolta eftir braut, fara í kollhnísa og ýmislegt fleira. Allir þeir sem komu að horfa á voru Pálína, Gunni og Magnea Fönn. Allir þeir sem tóku þátt voru Júlíana Lind, ég, Viðar Elí, Jón Brynjar, Kári, Þórey og Aníta Mjöll. Þau sem leiðbeindu okkur voru Elísa Ösp og Ingvar. Styrktarpeningurinn rennur til Unicef.
Sumarkveðja Ásta 
Bloggar | 10.5.2012 | 11:33 (breytt 14.5.2012 kl. 11:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við fórum inn í Djúpavík í skólaferðalag. María Guðmundsdóttir fór með okkur og sagði hvernig það hefði verið að alast upp þar til12 ára aldurs því þá flutti hún til Reykjavíkur. Við borðuðum á Hótel Djúpavík og fengum pítsu og kók
og hún Eva á hótelinu var svo góð við okkur að hún bauð okkur að borða. Við kíktum í lýsistankana og sungum ,,Stolt siglir fleyið mitt". Þetta var frábær ferð og við gleymum henni aldrei!
Bless í bili.kv. Kári
Bloggar | 10.5.2012 | 11:27 (breytt kl. 12:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var mikið um dýrðir hjá okkur á fimmtudaginn og við fögnuðum vorinu innilega með vorhátíð í Félagsheimilinu í Trékyllisvík. Það var ágætlega mætt og við buðum upp á frábæran kvöldverð sem samanstóð af beikondöðlum í forrétt, lambapottréttur með salati, brauði og hrísgrjónum í aðalrétt og marenshreiðrum í eftirrétt. Allir skemmtu sér vel og hér sjáið þið nokkrar myndir frá hátíðinni.
Takk fyrir okkur!
Bloggar | 1.5.2012 | 18:45 (breytt kl. 20:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja nú lítur allt út fyrir að við getum haldið vorhátíðina okkar hátíðlega á fimmtudaginn. Veikindi hafa verið að herja á okkur en nú eru allir að verða frískir. Vonandi sjá sér sem flestir fært að mæta og njóta þessarar stundar með okkur
Bloggar | 24.4.2012 | 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bingó var haldið fyrir troðfullu húsi í félagsheimilinu í Árnesi þann 7. apríl síðastliðinn.
Edda í Kaupfélaginu var bingóstjóri og tókst það starf glæsilega að vanda.
Menn mættu með baráttuanda og spiluðu af ástríðu, enda verðlaunin eftirsóknarverð svo ekki sé meira sagt. Aðalverðlaunin voru páskaegg og flugmiði fram og til baka hingað í sveitina með flugfélaginu Erni. Það var því rafmagnað andrúmsloft þegar Helga hans Hilmars á Krossnesi kallaði BINGÓ! eftir að hafa riggað upp fullu spjaldi á mettíma og með glæsibrag. Við Óskum Helgu til hamingju með stórsigurinn.
Flugfélaginu Erni, Hárgreiðslustofunni Mýrún, Ferðaþjónustunni Urðartindi, Margéti Eir og síðast en ekki síst Kaupfélagi Steingrímsfjarðar þökkum við innilega fyrir stuðninginn. Án hans hefði okkur varla tekist að halda þetta dásamlega Bingó.
Meðfylgjandi er mynd sem hinn góði ljósmyndari Claus Sterneck tók. En hann var á staðnum með fríðu föruneyti.
Bloggar | 10.4.2012 | 14:50 (breytt kl. 14:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér eru nokkrir málshættir sem við krakkarnir sömdum
Ekki lækna smyrsli sálarinnar sár: SINDRI FREYR
Sulta gerir góðan mat: HRAFNHILDUR KRÍA
Grjónagrautur er góður matur: ÞÓREY
Oftar blæs vindurinn en sólin skín: KÁRI
Sannleikurinn er ekki alltaf fallegur: ÁSTA ÞORBJÖRG
Dánir mega kyrrir liggja: BRYNJAR KARL
Gleðilega páska!
Bloggar | 29.3.2012 | 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eins og þið vitið fara páskarnir bráðum að koma og allir fara í páskafrí. Núna ætlum ég og Sindri Freyr að segja ykkur hvað við ætlum að gera í páskafríinu.
Sindri: Ég hef enga hugmynd um hvað ég ætla að gera í páskafríinu. Örugglega bara að hafa það gott.
Ásta: Ég ætla að fara til Reykjavíkur í afmælið hennar ömmu og svo ætla ég bara að gera það sama og Sindri, hafa það gott.
Kv. Sindri Freyr og Ásta Þorbjörg
Bloggar | 29.3.2012 | 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vísan hérna að neðan sýnir að margföldunartaflan
á það til að vera dálítið ruglingsleg, en ef maður
skoðar hana vel þá er hún sára einföld.
Ég margfalda fjóra með mér
og fimm sinnum fjóra með þér,
þú ert sinnum níu,
en ég sinnum tíu,
það hver lifandi maður sér.
Við eigum öll okkar uppáhaldstöflu.
Kára finnst til dæmis 6 sinnum taflan skemmtilegust.
Brynjari líkar best við 10 sinnum töfluna.
Júlíana elskar 7 sinnum töfluna og Ásta þá fimmtu.
Bloggar | 22.3.2012 | 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurt er
211 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
Tvist og bast í netheimum
- Númi Fjalar Númi Fjalar á myspace / aðeins fyrir útvalda ;D
- Gummi á Melum Guðmundur Björnsson
- Bæjarins besta Vestfirskar fréttir
- HSS Héraðssamband Strandamanna
- Galdrar Galdrasýning á Ströndum
- Kindur Sauðfjársetur á Ströndum
- Molar um Árneshrepp Árneshreppur í Wikipediu
- Félag Árneshreppsbúa Skemmtileg og stórfróðleg
- Veiðileysuætt Ættartal frá merkum bæ í Árneshreppi
- Djúpavík Flottasta hótel í heimi!
- Litli-Hjalli Jón Guðbjörn í Litlu-Ávík með ferskar fréttir
- Strandir Fréttir af Ströndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 5
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 102
- Frá upphafi: 89928
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar














gutti
skens
loathor
anitas